[ einar garibaldi eiríksson ]
annað >
heim | verk | sýningar | myndraðir | ferilskrá | annað | english
eigin skrif | umfjöllun | sýningarstjórn | útgáfa | vinnustofa


 
[ maðurinn og fjallið ]
sýningarskrá /
georg guðni /
arion banki /
2015 >
Georg Guðni umbreytti heiminum í mynd með því að færa honum líkama sinn. Honum var ekki eiginlegt að draga markalínu á milli sín og heimsins, heldur var líkami hans eitt með verunni, í stöðugu samtali við náttúruna jafnt sem málverkið. Í raun má segja að hann hafi verið vísindamaður skynfæranna og að verk hans varpi skýru ljósi á þann næma skilning er hann hafði á þeirri mikilvægu þekkingu er streymir í gegnum líkamann á hverju augnabliki.

Upplifunum sínum umbreytti hann í myndir líkt og fyrir töfra. Málverk hans opna augu okkur fyrir veröldinni handan ásýndar hlutanna. Frammi fyrir verkum hans svífum við um óravíddir málverksins, í fullkominni samsvörun við myndefnið í verkum hans. Verk hans afklæða okkur út á berangri, þar sem við stöndum líkt og umkomulausar sálir, hjálparvana og undrandi, í sömu andrá og skilningur okkar á lífunu vaknar.

Verk Georgs Guðna grundvallast á algerri opnun skilningarvitanna, ásamt næmri vitund hans og skilningi fyrir umhverfinu hverju sinni. Þannig laukst fjallið upp fyrir honum sem raunverulegur íverustaður mikilvægra upplifanna, þar sem heildartilfinning skynjandi mannveru í náttúrunni líkt og holdgerðust í vitund hans. Með þessum hætti nálgaðist hann hina upprunalegu heild náttúrunnar –sem hann meðtók ætíð í hinu kosmíska samhengi sínu– þar sem sérhver hlutur, fyrirbæri og vera, er virkur þátttakandi í samtali og mótun alheimsins.

Sá magnþrungi kraftur er birtist okkur í verkum hans er afrakstur stefnumóts við sjálfa veruna. Í þeim renna saman heildaráhrif þeirra upplifanna, minninga, sögu og væntinga er kynni hans af náttúrunni hafa veitt honum aðgang að. Nálgun hans stöðvar aldrei við yfirborð hlutanna, heldur kafar hann í sífellu á vit þeirra djúpstæðu kennda sem búa innra með okkar og skilgreina okkur sem mannverur.

Með verkum sínum færir hann okkur aftur þá veröld sem að við töldum glataða. Í þeim birtist ekki eingöngu sú fagra ásýnd íslenskrar náttúru sem okkur er orðið tamt að sjá, heldur birtast okkur þar bæði óminnis ásar og sögulaus auðn, jafnt ókunnir dalir sem nafnlaus fjöll. Sem áhorfendur upplifum við okkur eiginlega allsstaðar og hvergi, áttavillt í nýsköpuðu en jafnframt kunnuglegu landslagi. Hér birtist okkur náttúran með sama hætti og hún birtist í huga málarans, á svæði hugsunar þar sem ímyndun og veruleiki renna saman.

Georg Guðni þræddi uppgötvanir sínar vandlega inn í flókinn málaravef sinn. Innan hans erum við sem fangar ákveðins hugsunarkerfis, þar sem sjálf frumefnin í tilveru okkar kristallast. Dag eftir dag, lag fyrir lag, málverk eftir málverk, þar sem þolinmæði hinna síkviku pensilstroka teygir sig til ólíkra átta. Þannig lifnuðu myndir hans, af innsæi þeirrar elju, sem aðeins kviknar af raunverulegum kynnum þeirrar heildarupplifunar sem felst í því að standa í miðju veraldarinnar.

Nú er Georg Guðni horfinn á vit sinna draumsýna. Honum tókst það ætlunarverk sitt að mála sjálfan sig í fjallið. Líkami hans er orðinn eitt með náttúrunni og himininn yfir höfði hans hefur smokrað sér ofan í dalina. Sjóndeildarhringurinn tók hann allt of snemma, fyllti allar glufur, öll vit og sérhverja æðar líkamans. Tíminn hljóp frá honum á leið sinni inn í nýjar víddir tilverunnar. Íslensk náttúra er ekki söm eftir þessi kynni. Ekki fremur en við sem höfum verið svo lánsöm að eignast hlutdeild í verkum hans. Brotthvarfið er sárara en orð fá lýst, en skilningur okkar á lífinu er nú orðinn allur annar.

 
     
  < | >  
     


2024 © [ einar garibaldi eiríksson ]