[ einar garibaldi eiríksson ]
annað >
heim | verk | sýningar | myndraðir | ferilskrá | annað | english
sýningarstjórn | eigin skrif | umfjöllun | útgáfa | vinnustofa | krækjur | leiðsögn


[ handan listasögunnar ]
lesbók /
morgunblaðið /
2007 >
Á Kjarvalsstöðum fer nú að ljúka sýningunni "K-þátturinn / Málarinn Jóhannes S. Kjarval", en á henni eru verk "Meistara Kjarvals" sett fram í óvenjulegu og all nýstárlegu samhengi. Í greininni hér á eftir lýsir myndlistarmaðurinn og sýningarstjórinn Einar Garibaldi Eiríksson nokkrum hugmyndum að baki sýningunni, sem lýkur sunnudaginn
2. september. Þess má geta að þann dag kl. 15.00 verður Einar með leiðsögn fyrir áhugafólk um sýninguna.

Í bókmenntafræði hefur hugtakið K-þáttur þá sérstöku merkingu að vísa til skáldsagnapersóna er þjást af hverskyns ofskynjunum eða eiga við taumlausa ofsóknaráráttu að stríða. Þessi notkun á sér fyrirmynd í höfuðpersónu Réttarhaldanna eftir tékkneska rithöfundinn Franz Kafka, en í því verki vaknar herra K. upp frá þeim vonda draumi, að vera ásakaður um glæpi er hann kannast ekki við að hafa framið. Eðlisfræðingar nota þetta sama hugtak til að marka þá hámarksspennu er efnið þolir áður en það brotnar í sundur eða gefur sig undan álagi. Og með svipuðum hætti hafa þekkingarfræðin notað það sem vísun til endimarka kunnáttunnar, eða þeirra mæra er aðgreina hið skilgreinanlega frá hinu óþekkta. Þessi gefnu mæri eru að sjálfsögðu mörkuð með stórum upphafsstaf, en þannig hafa þekkingarfræðin einmitt útilokað -eða í það minnsta reynt að gjaldfella þá tegund þekkingar er hvorki dregur eða þarfnast slíkra markalína og birtir niðurstöður sínar á opnari og listrænni tjáningarmáta. Titill sýningarinnar vísar þannig til þeirrar skynjunar er nemur heiminn handan hins gefna og augljósa, ásamt vandanum er felst í því að orða hið ókunna er býr handan hinna gefnu mæra þekkingarinnar.

Sýningunni er fyrst og fremst ætlað að hvetja áhorfendur til að taka þátt í samræðu við málarann Jóhannes S. Kjarval og líta á sýningarrými Kjarvalsstaða sem áhættusvæði óheftrar hugsunar, fremur en geymslustað ósnertanlegra meistaraverka. Á henni er samband okkar við Kjarval spennt til hins ýtrasta; hefðbundnir rammar þekkingarinnar eru fjarlægðir og verk hans sýnd án skírskotunar til stílfræði eða listsögulegra útlegginga. Engar tilraunir eru gerðar til að greina eða túlka verk hans með vísunum til staðreynda er varða líf hans, líkamsburði eða lundarfar, og þannig eru sýningargestir hvattir til að nálgast verkin án nokkurra formerkja, til að stíga nær þeim á eigin forsendum án frekari málalenginga.

Sýningin hafnar hefðbundinni nálgun og aðferðarfræði listasögunnar og stendur því að vissu leyti handan hennar. Með hefðbundinni listasögu er átt við þá tegund greiningar er byggir fræði sín á formgerðarlýsingum og hugmyndum um stílfræna framvindu innan ramma ævisögunnar, aðferðar er hófst með ritun Vasari á Ævum hinna miklu listamanna og lauk með stóru bókinni um Kjarval 1875 - 1972 , en í hana ritar einmitt einn af merkisberum hugmyndarinnar um endalok listarinnar. Á vissan hátt gengur sýningin því út frá hugmyndinni um að við lifum nú á tímum sem að einhverju leyti eru handan listasögunnar og sem tákn um það er hinu mikla verki Kjarvals "Krítík" snúið við, þannig að það snýr bakhlið sinni til áhorfenda.

Hvernig sem á það er litið snýr verkið þó rétt á sýningunni, en árum saman hefur það einmitt hangið yfir nemendum í listasögu handan við vegginn þar sem það er nú sýnt, auk þess sem það prýðir forsíðu stóru bókarinnar um Kjarval. Þannig snýr verkið rétt í tvöföldum skilningi; annarsvegar í átt að þeirri listasögu sem kennd er handan við vegginn og þeirrar sem geymd er innan bókarkápunnar, en hinsvegar til sýningargestanna hérna megin listasögunnar, berskjaldað og opið fyrir nýjum túlkunum handan goðsagnarsmíða hinna hefðbundnu listfræða.

Með viðsnúningi Kjarvalsverksins er ekki ætlunin að fá sjálfan höfundinn til að snúa sér við í gröfinni, öllu heldur felur hann í sér gagnrýni á þá umgengni og umræðu er við höfum átt í um arfleið hans. Hér er alls ekki farið fram á að verkið snúi þannig til frambúðar, heldur er það fremur gert sem áminning um stöðu okkar ef svo ólánlega vildi til að við yrðum án verka hans, auk þess að vilja vera hvatning til endurhugsunar á afstöðu okkar og sambandi til þeirra.

Á tímabili gekk sýningin undir vinnuheitinu "Kjarval - Unplugged", er sækir til þess er rokkhljómsveitir koma fram án stuðnings rafmögnunar. Vinnuheiti sýningarinnar fangaði þannig ágætlega einn af megin útgangspúnktum hennar, sem var að mega birta okkur Kjarval algerlega umbúðalausan, þannig að sýningargestir gætu notið verka hans án utanaðkomandi truflunar. Á sýningunni eru allir rammar fjarlægðir af verkum hans, auk þess sem að þau eru sýnd án allra hefðbundinna grunnupplýsinga; því að þeim fylgja hvorki mál, titlar, ártöl eða efnisval, né heldur vangaveltur um meint inntak þeirra eða innihald. Í stað þess er rödd Kjarvals leyft að hljóma; bæði úr hátölurum og í sýningarskrá, þar sem hugleiðingar hans, ádrepur og ábendingar gamalla viðtala leiða sýningargesti í gegnum salina. Þetta færir okkur óneitanlega nær Kjarval og verkum hans, því um leið og við hlustum á orð hans sjálfs, losna verk hans úr römmum þeirrar hugsunar er lokað hafa þau innan ákveðinnar og gefinnar merkingar og engu er líkara en að við uppgötvum nýjan Kjarval, handan allra fastmótaðra útlistinga um eðli, stíl og merkingu í verkum hans.

Aðferðir hefðbundinna listfræða hjálpa okkur vissulega við að halda utan um ýmsa mikilvæga þætti skilnings okkar á Kjarval, en á sama tíma verðum við að vera okkur meðvituð um takmörk þeirra og allra síst megum við láta þau einoka sambandið við Kjarval, enda þarfnast verk hans okkar sem áhorfenda, ekki síður en við þörfnumst þeirra. Því menningarleg sjálfsvitund okkar krefst þess að við eigum í stöðugu samtali við verk hans og svo framarlega sem þau hreyfa við skynjun okkar og skilningi, eru þau í senn of dýrmæt og mikilvæg til að við getum leyft okkur að gleyma þeim á safni, hneppt í þröngan skilning opinberrar lýsingar á sannleiksgildi þeirra. Handan listasögunnar er því óþarfi að óttast um afdrif listarinnar og hérna megin markalínunnar hljótum við að snúa baki við goðsögninni um meistarann og gefa sjálfum okkur nauðsynlegan tíma til að hlusta eftir mikilvægri rödd málarans Jóhannesar S. Kjarval.
 
     
  < | >  
     


2024 © [ einar garibaldi eiríksson ]